Operations Manager
Date: 5 Jun 2026
Location: Akureyri, IS
Company: inchcape
Verkstæðisstjóri Akureyri
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi til að hafa yfirumsjón með daglegum rekstri fyrirtækisins á Akureyri. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi ber ábyrgð á daglegum rekstri, starfsfólki og skipulagi starfseminnar á staðnum.
Viðkomandi vinnur náið með framkvæmdastjóra og tryggir að starfsemin gangi vel og skilvirkt fyrir sig frá degi til dags.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur
- Umsjón með ráðningum og öðrum starfsmannamálum
- Umsjón með húsnæði, vélum og tækjum
- Yfirumsjón með tjónamálum rekstrar og eftirfylgni/frágangi þeirra mála
- Þátttaka í vinnuhópum og leiðir verkefni þvert á deildir og svið eftir þörfum
- Önnur verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem í bifvélavirkjun, rekstri eða viðskiptafræði
- Umfangsmikil reynsla af stjórnun og rekstri
- Reynsla af starfsmannastjórnun og teymisvinnu
- Reynsla af þjónustu- eða verkstæðisrekstri er kostur
- Sterk leiðtoga- og stjórnunarhæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæm vinnubrögð
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Góð skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi
- Lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðhorf
Af hverju að vinna með okkur?
- Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
- Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Dekkjahöllin er eitt öflugasta dekkjafyrirtæki landsins og hefur verið á meðal Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo í 15 ár í röð. Fyrirtækið er umboðsaðili leiðandi framleiðenda á borð við Continental, Yokohama og Falken.
Móðurfélag Dekkjahallarinnar er Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims. Starfsmenn félaganna eru um 250 talsins.
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2026
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Ef til þess kemur að þér verði boðið starf kann félagið að óska eftir sakavottorði ásamt annars konar upplýsingum sem staðfesta menntun þína og reynslu, s.s. prófskírteini. Jafnframt kann félagið að óska eftir því að skilað sé inn upplýsingum um fjárhagslegar skuldbindingar, einkum staðfestingu á því að þú sért hvorki gjaldþrota né á vanskilaskrá. Fer slík upplýsingaöflun eftir eðli þess starfs sem um ræðir hverju sinni.
Nánari upplýsingar veita
Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is
Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is