Customer Service Representative
Date: 18 Aug 2026
Location: Mosfellsbæ, IS
Company: inchcape
Þjónustufulltrúi
Landfari ehf óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa í verkstæðismóttöku sína í Desjamýri 10 í Mosfellsbæ til að þjónusta viðskiptavini Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla.Landfari ehf. er með umboð fyrir Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi sem hafa í gegnum árin verið meðal mest seldu atvinnutækja landsins. Fyrirtækið er systurfélag bílaumboðsins Öskju, Dekkjahallarinnar og bílaumboðsins Unu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Ráðgjöf og tilboðsgerð
- Samvinna við þjónustuteymi verkstæðis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og mikil samskiptahæfni
- Færni í teymisvinnu
- Reynsla af sambærilegum störfum
- Þekking á bílum kostur
- Góð tölvukunnátta
- Gott vald á Íslensku í töluðu og rituðu máli
Vinnutími er frá kl. 08:00 - 17:00 mánudaga til fimmtudaga, og frá 08:00-16:00 á föstudögum.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Gunnar Páll Einarsson Lagerstjóri með netfangið gpe@landfari.is