Þjónusturáðgjafi - Askja og Dekkjahöllin í Reykjanesbæ

Date: 18 Nov 2026

Location: Reykjanesbæ, IS

Company: inchcape

Hefur þú gaman af fólki, sérð tækifæri þar sem aðrir sjá verkefni og hefur metnað til að gera góða þjónustu enn betri?

Askja og Dekkjahöllin halda áfram að efla starfsemi sína í Reykjanesbæ og leita að öflugum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt starf þjónusturáðgjafa.

Við leitum að einstaklingi sem vill taka ábyrgð, byggja upp sterk viðskiptasambönd, halda utan um fjölbreytt verkefni og taka virkan þátt í að sækja ný viðskipti á Suðurnesjum.

Við viljum manneskju sem sér hvað þarf að gera – og lætur það gerast.

Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af öflugu teymi Öskju, Unu, Dekkjahallarinnar og Landfara. Hjá félögunum starfa samtals um 250 starfsmenn á 14 starfsstöðvum víða um land. Félögin eru leiðandi hvert á sínu sviði og vinna með nokkrum af fremstu framleiðendum bifreiða, atvinnutækja og hjólbarða í heiminum.

Helstu verkefni væru:

  • Móttaka viðskiptavina, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta

  • Skipulagning verkstæðisbókana, undirbúningur verkefna og eftirfylgni

  • Samhæfing verkefna við bifvélavirkja, hjólbarðaþjónustu, varahlutadeildir og aðra samstarfsaðila

  • Reikningagerð, afhendingar og frágangur verkbeiðna

  • Uppbygging og efling viðskiptasambanda við einstaklinga og fyrirtæki á Suðurnesjum

  • Frumkvæði að nýjum viðskiptatækifærum og þátttaka í sölu og markaðssókn

  • Þátttaka í þróun og umbótum á starfseminni

Hæfniskröfur:

  • Framúrskarandi þjónustulund og góð samskiptafærni

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun

  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og metnaður til að ná árangri

  • Viðskiptavit og áhugi á sölu og uppbyggingu viðskiptasambanda

  • Hæfni til að vinna með öðrum og takast á við fjölbreytt verkefni

  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja hluti

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Reynsla af sölu, þjónustu eða sambærilegum störfum er mikill kostur. Þekking á bifreiðum og hjólbörðum er einnig kostur en ekki skilyrði.

Ekki hika við að sækja um

Hljómar þetta eins og starf fyrir þig? Sendu okkur endilega umsókn, jafnvel þótt þú uppfyllir ekki öll skilyrðin sem við leitum að. Þú gætir verið rétti einstaklingurinn í þetta starf eða annað tækifæri innan Inchcape á Íslandi.

Tækifæri fyrir öll

Við viljum skapa fjölbreyttan vinnustað þar sem ólík reynsla, bakgrunnur og sjónarmið fá að njóta sín. Þess vegna hvetjum við öll sem hafa áhuga á starfinu til að sækja um.

Inchcape Ísland býður upp á

Hjá Inchcape horfum við til framtíðar og viljum hafa okkar fólk með í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á gott samstarf, vellíðan og vinnuumhverfi þar sem ólíkt fólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.

Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, byggja upp þekkingu og þróast í starfi bæði hér heima og sem hluti af alþjóðlegu fyrirtæki.

Í þessu starfi færðu jafnframt tækifæri til að taka virkan þátt í uppbyggingu starfseminnar í Reykjanesbæ. Þú vinnur náið með þjónustustjóra og öflugu teymi þar sem frumkvæði þitt, hugmyndir og árangur geta haft raunveruleg áhrif á þjónustu og vöxt beggja fyrirtækja.

Um Bílaumboðið Öskju og Dekkjahöllina

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks og er virk þjálfun og endurmenntun í samræmi við gæðastaðla framleiðenda.

Dekkjahöllin sérhæfir sig í sölu hjólbarða og tengdri þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Askja og Dekkjahöllin eru hluti af Inchcape á Íslandi ásamt Landfara og Bifreiðaumboðinu Unu.

Nánari upplýsingar má finna á www.askja.is.

Um Inchcape

Inchcape er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í dreifingu og sölu bifreiða og starfar á 39 mörkuðum um allan heim. Við vinnum með mörgum af stærstu vörumerkjum bílaiðnaðarins og leggjum áherslu á að þróa lausnir sem styðja við sjálfbærari samgöngur til framtíðar.

Hjá Inchcape starfa yfir 17.000 manns um allan heim. Við leggjum áherslu á fjölbreytileika, gott samstarf og vinnuumhverfi þar sem fólk fær að njóta sín, með það að markmiði að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila.

Inchcape er öflugt og vaxandi alþjóðlegt fyrirtæki sem tekur virkan þátt í þeirri þróun sem á sér stað í bílaiðnaðinum.

Nánari upplýsingar um Inchcape má finna á www.inchcape.com.

Um er að ræða framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Egill Ragnar Brynjarsson Þjónustustjóri í Reykjanesbæ erb@askja.is