Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Date: 20 Oct 2026
Location: Reykjavík, IS
Company: inchcape
Langar þig að þróast í starfi, byggja upp þekkingu og reynslu og vera hluti af öflugu og góðu teymi?
Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af alþjóðlegu fyrirtæki. Við vinnum með nokkur af fremstu vörumerkjum í bílaiðnaðinum og leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.
Sem Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild munt þú sinna sölu og afgreiðslu varahluta fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Starfið er fjölbreytt og krefst bæði mikillar þjónustulundar og góðrar þekkingar á bílum. Þú verður hluti af öflugu teymi þar sem samstarf, fagmennska og framúrskarandi þjónusta eru í fyrirrúmi.
Þetta er framtíðarstarf fyrir einstakling sem hefur gaman af mannlegum samskiptum, getur unnið sjálfstætt og leggur metnað í að finna réttar lausnir fyrir viðskiptavini og samstarfsfólk.
Þín helstu verkefni væru:
- Afgreiðsla varahluta í framlínu og þjónustuveri varahlutaverslunar
- Úrvinnsla fyrirspurna í gegnum síma, tölvupóst og aðra samskiptamiðla
- Afgreiðsla varahluta til innri viðskiptavina og verkstæða
- Frágangur pantana og móttaka vara frá birgjum
- Umsjón með upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina um varahluti
- Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri varahlutadeildar
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Áhugi og þekking á bílum
- Sveinspróf í bifvélavirkjun er kostur
- Reynslu af Navision eða sambærilegum rekstrarkerfum er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Jákvætt viðmót og hæfni til að vinna í teymi
Ekki hika við að sækja um
Hljómar þetta eins og starf fyrir þig? Sendu okkur endilega umsókn, jafnvel þótt þú uppfyllir ekki öll skilyrðin sem við leitum að. Þú gætir verið rétti einstaklingurinn í þetta starf eða annað tækifæri innan Inchcape Ísland.
Tækifæri fyrir öll
Við viljum skapa fjölbreyttan vinnustað þar sem ólík reynsla, bakgrunnur og sjónarmið fá að njóta sín. Þess vegna hvetjum við öll sem hafa áhuga á starfinu til að sækja um.
Inchcape Ísland býður upp á
Hjá Inchcape horfum við til framtíðar og viljum hafa okkar fólk með í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á gott samstarf, vellíðan og vinnuumhverfi þar sem ólíkt fólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.
Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, byggja upp þekkingu og þróast í starfi bæði hér heima og sem hluti af alþjóðlegu fyrirtæki.
Um Öskju
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi ásamt Landfara, Dekkjahöllinni og Bifreiðaumboðinu Unu.
Nánari upplýsingar um Öskju má finna á www.askja.is.
Um Inchcape
Inchcape er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í dreifingu og sölu bifreiða og starfar á mörkuðum um allan heim. Við vinnum með mörgum af stærstu vörumerkjum bílaiðnaðarins og leggjum áherslu á að þróa lausnir sem styðja við sjálfbærari samgöngur til framtíðar.
Hjá Inchcape starfa yfir 17.000 manns um allan heim. Við leggjum áherslu á fjölbreytileika, gott samstarf og vinnuumhverfi þar sem fólk fær að njóta sín, með það að markmiði að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila.
Nánari upplýsingar
Um er að ræða framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Sveinn Nikulásson, sölustjóri varahluta, á netfanginu sn@askja.is.