Bifvélavirki Kia, Honda og Xpeng
Date: 11 May 2026
Location: Reykjavík, IS
Company: inchcape
Bifvélavirki Kia, Honda og Xpeng
Við leitum að bifvélavirkja með sveinspróf til að ganga til liðs við sérhæfðan og öflugan hóp á bílaverkstæði Kia, Honda og Xpeng. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls 13 í Reykjavík.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
- Þjónustuskoðanir
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í bifvélavirkjun
- Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
- Ökuréttindi
Af hverju að vinna með okkur?
- Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
- Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónas Gylfason, þjónustustjóri Kia og Honda, hjg@askja.is.