Bifvélavirkjanemi hjá Öskju

Date: 30 Oct 2026

Location: Reykjavík, IS

Company: inchcape

Bifvélavirkjanemi hjá Öskju

Langar þig að byggja upp sterkan grunn fyrir framtíðina í bifvélagreininni og læra af reynslumiklu fagfólki?

Hjá Öskju færðu tækifæri til að þróast í starfi, öðlast dýrmæta reynslu og vinna með nokkrum af fremstu vörumerkjum bílaiðnaðarins. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi bifvélavirkjanema sem hafa áhuga á að vaxa í starfi og taka þátt í öflugu teymi fagfólks.

Askja leggur mikla áherslu á góða móttöku, þjálfun og stuðning við nema. Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu frá Nemastofu fyrir framúrskarandi fræðslu og þjálfun í bifvélavirkjun.

Sem bifvélavirkjanemi hjá Öskju færðu tækifæri til að vinna við þjónustu, greiningu og viðgerðir á Mercedes-Benz, Kia, Honda, smart og Xpeng bifreiðum undir handleiðslu reynslumikilla sérfræðinga.

Þín helstu verkefni væru:

  • Aðstoð við þjónustu og viðgerðir á bifreiðum
  • Greining og bilanaleit undir leiðsögn fagfólks
  • Þátttaka í daglegum verkefnum verkstæðisins
  • Viðhald vinnuaðstöðu og verkfæra
  • Að fylgja verklagi, gæðakröfum og öryggisstöðlum fyrirtækisins
  • Virk þátttaka í námi og starfsþjálfun

Hæfniskröfur:

  • Nám í bifvélavirkjun
  • Jákvætt viðmót og áhugi á faginu
  • Rík þjónustulund og góð samstarfshæfni
  • Fagleg og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi og góð skólasókn
  • Vilji til að læra og taka framförum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Ekki hika við að sækja um

Hljómar þetta eins og tækifæri fyrir þig? Sendu okkur umsókn, jafnvel þótt þú uppfyllir ekki öll skilyrðin sem við leitum að. Við viljum kynnast einstaklingum með áhuga, metnað og vilja til að þróast í starfi.

Tækifæri fyrir öll

Við viljum skapa fjölbreyttan vinnustað þar sem ólík reynsla, bakgrunnur og sjónarmið fá að njóta sín. Þess vegna hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um, óháð kyni, uppruna eða öðrum persónubundnum þáttum.

Inchcape Ísland býður upp á

Hjá Inchcape horfum við til framtíðar og viljum hafa okkar fólk með í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á gott samstarf, vellíðan og vinnuumhverfi þar sem fólki gefst tækifæri til að vaxa og þróast.

Við bjóðum meðal annars upp á:

  • Markvissa starfsþróun og öflugt fræðslustarf
  • Samvinnu og sveigjanleika
  • Fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Frábært félagslíf
  • Samkeppnishæf kjör
  • Flott mötuneyti á staðnum
  • Tækifæri til starfsþróunar innan alþjóðlegs fyrirtækis

Um Öskju

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks og er virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks í samræmi við gæðastaðla framleiðenda. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi ásamt Landfara, Dekkjahöllinni og Bifreiðaumboðinu Unu.

Um Inchcape

Inchcape er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í dreifingu og sölu bifreiða og starfar á mörkuðum um allan heim. Hjá Inchcape starfa þúsundir starfsmanna sem vinna saman að því að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila.

Nánari upplýsingar

Um er að ræða starf fyrir bifvélavirkjanema.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Gunnlaugsson teymisstjóri þjónustu jgu@askja.is.