Head of Finance
Date: 2 Jul 2026
Location: Reykjavík, IS
Company: inchcape
Forstöðumaður reikningshalds
Langar þig að hafa raunveruleg áhrif á þróun fjármála- og reikningshaldsmála hjá leiðandi fyrirtækjum á íslenskum bílamarkaði?
Inchcape á Íslandi leitar að öflugum og metnaðarfullum forstöðumanni reikningshalds til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun bókhalds- og fjármála hjá Bílaumboðinu Öskju, Dekkjahöllinni, Landfara og Bílaumboðinu Unu.
Forstöðumaður reikningshalds gegnir lykilhlutverki í að tryggja áreiðanleg reikningsskil, styrkja innra eftirlit og styðja stjórnendur með vönduðum fjármálaupplýsingum. Starfið felur jafnframt í sér ábyrgð á þróun bókhalds, skattamála og innra eftirlits í samræmi við stefnu og staðla Inchcape.
Starfið veitir einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun ferla, styrkja innra eftirlit og taka þátt í umbreytingar- og umbótaverkefnum í umhverfi þar sem fagmennska, samvinna og framþróun eru í forgrunni. Um er að ræða lykilstöðu sem vinnur náið með stjórnendum félaganna hér á landi og sérfræðingum innan alþjóðlegu Inchcape-samstæðunnar.
Félögin eru dótturfélög Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc, leiðandi fyrirtæki á sviði sölu og dreifingar bifreiða. Inchcape starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims. Með því að ganga til liðs við Inchcape á Íslandi verður þú hluti af öflugri alþjóðlegri samstæðu sem leggur áherslu á fagmennsku, þróun og árangur
Við leitum að einstaklingi sem er lausnamiðaður, hefur áhuga á þróun ferla og býr yfir sterkri samstarfs- og leiðtogahæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra bókhaldsferlum, skattamálum og mánaðaruppgjörum í samræmi við íslensk lög, alþjóðlega reikningsskilastaðla og innri reglur Inchcape.
- Mannaforráð yfir teymi bókara, þar á meðal leiðsögn, forgangsröðun verkefna og frammistöðumat.
- Skila ársreikningum og lögbundnum skýrslum til stjórnvalda ásamt samskiptum við endurskoðendur.
- Þróa og efla innra eftirlit og eftirfylgni með framkvæmd þess í rekstri.
- Halda utan um innri og ytri endurskoðun, tryggja skilvirkt innra eftirlit og að samræmdum verklagsreglum sé fylgt.
- Annast skattaskil, m.a. virðisaukaskatt og tekjuskatt og fylgja eftir breytingum á lögum.
- Veita stjórnendum ráðgjöf og upplýsingar um breytingar á skattalöggjöf, reikningsskilareglum eða aðra þætti sem hafa áhrif á fjármál og reikningsskil.
- Viðhalda og efla samskipti við stjórnendur samstæðunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla af uppgjörum samkvæmt alþjóðlegum og íslenskum reikningsskilareglum.
- Viðeigandi menntun, svo sem í viðskiptafræði og/eða meistaragráða í endurskoðun og reikningsskilum; löggilding í endurskoðun er mikill kostur.
- Yfirgripsmikil þekking og reynsla af vinnu við bókhald og uppgjör.
- Þekking á íslenskum skattalögum.
- Reynsla af samstarfi við endurskoðendur og góð þekking á innra eftirliti.
- Skipulagshæfni, nákvæmni og hæfni til að leiða umbótaverkefni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
Af hverju að vinna með okkur?
Hjá okkur færð þú tækifæri til að gegna lykilhlutverki í rekstri öflugra fyrirtækja og taka þátt í spennandi verkefnum í alþjóðlegu umhverfi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, traust og samvinnu og viljum skapa vinnustað þar sem fólk fær svigrúm til að hafa áhrif, þróast í starfi og ná árangri saman.
Við bjóðum:
- Tækifæri til að leiða áframhaldandi þróun reikningshalds- og fjármálastarfs fyrirtækjanna til framtíðar.
- Áhrifamikið lykilstarf með víðtæka ábyrgð og tækifæri til að móta verklag og ferla.
- Samstarf við öflugt stjórnendateymi hér á landi og sérfræðinga innan alþjóðlegrar Inchcape-samstæðu.
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem fagleg þróun og umbætur eru í stöðugum fókus.
- Sterka liðsheild og alþjóðlegt starfsumhverfi.
- Fjölskylduvænan vinnustað þar sem velferð og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi.
- Samkeppnishæf kjör og góð starfstengd fríðindi.
- Líftryggingu fyrir allt starfsfólk.
- Tækifæri til starfsþróunar innan alþjóðlegs fyrirtækis sem er leiðandi á sínu sviði.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi sem lýsir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.
Ef til þess kemur að þér verði boðið starf kann félagið að óska eftir sakavottorði ásamt annars konar upplýsingum sem staðfesta menntun þína og reynslu, s.s. prófskírteini. Jafnframt kann félagið að óska eftir því að skilað sé inn upplýsingum um fjárhagslegar skuldbindingar, einkum staðfestingu á því að þú sért hvorki gjaldþrota né á vanskilaskrá. Fer slík upplýsingaöflun eftir eðli þess starfs sem um ræðir hverju sinni.
Nánari upplýsingar veita
Nánari upplýsingar veitir Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.