Host at Askja

Date: 26 Sept 2026

Location: Reykjavík, IS

Company: inchcape

Langar þig að þróast í starfi, byggja upp þekkingu og reynslu og vera hluti af öflugu og góðu teymi?

Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af alþjóðlegu fyrirtæki. Við vinnum með nokkur af fremstu vörumerkjum í bílaiðnaðinum og leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.

Sem gestgjafi hjá Öskju munt þú gegna veigamiklu hlutverki í að tryggja framúrskarandi þjónustu og að upplifun viðskiptavina sé til fyrirmyndar. Gestgjafar Öskju starfa á Krókhálsi 11 (Mercedes Benz og Smart) og á Krókhálsi 13 (KIA og Honda). Mikil tenging er á milli húsanna og samstarf náið þar sem gestgjafar geta unnið þvert á vörumerki.

Gestgjafar taka á móti og bjóða viðskiptavini velkomna, hafa umsjón með sýningarsal og sinna fjölbreyttum verkefnum tengdum sölu og þjónustu. Starfið er fjölbreytt og tengist flestum deildum Öskju. Gestgjafi þarf að vera öruggur í samskiptum, lausnamiðaður og geta tekist á við fjölbreytt og einnig krefjandi mál með viðskiptavinum.

 

Þín helstu verkefni væru:

  • Móttaka og almenn þjónusta viðskiptavina
  • Umsjón með sýningarsal og fundarherbergjum
    • Létt þrif, frágangur og umsjón með þrifum.
  • Umsjón og aðstoð við snjall-lyklabox
  • Aðstoð við undirbúning og framkvæmd sýninga og viðburða
  • Ýmis verkefni sem styðja við sölu og þjónustu.
  • Samskipti við birgja pantanir og annað tilfallandi.

 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af þjónustustörfum
  • Góð samskiptahæfni og lausnamiðað hugarfar
  • Rík þjónustulund og snyrtimennska
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu

 

Ekki hika við að sækja um

Hljómar þetta eins og starf fyrir þig? Sendu okkur endilega umsókn, jafnvel þótt þú uppfyllir ekki öll skilirðin sem við leitum að. Þú gætir verið rétti einstaklingurinn í þetta starf eða annað  tækifæri innan Inchcape Ísland.

Tækifæri fyrir öll

Við viljum skapa fjölbreyttan vinnustað þar sem ólík reynsla, bakgrunnur og sjónarmið fá að njóta sín. Þess vegna hvetjum við öll sem hafa áhuga á starfinu til að sækja um.

Inchcape Ísland bíður uppá

Hjá Inchcape horfum við til framtíðar og viljum hafa okkar fólk með í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á gott samstarf, vellíðan og vinnuumhverfi þar sem ólíkt fólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.

Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, byggja upp þekkingu og þróast í starfi bæði hér heima og sem hluti af alþjóðlegu fyrirtæki.

Um okkur

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi ásamt Landfara, Dekkjahöllinni og Bifreiðaumboðinu Unu. Nánari upplýsingar um Inchcape má finna á www.askja.is.

Um Inchcape

Inchcape er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í dreifingu og sölu bifreiða og starfar á 39 mörkuðum um allan heim. Við vinnum með mörgum af stærstu vörumerkjum bílaiðnaðarins og leggjum áherslu á að þróa lausnir sem styðja við sjálfbærari samgöngur til framtíðar.

Hjá Inchcape starfa yfir 17.000 manns um allan heim. Við leggjum áherslu á fjölbreytileika, gott samstarf og vinnuumhverfi þar sem fólk fær að njóta sín, með það að markmiði að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila.

Inchcape er öflugt og vaxandi alþjóðlegt fyrirtæki sem tekur virkan þátt í þeirri þróun sem á sér stað í bílaiðnaðinum.

Nánari upplýsingar um Inchcape má finna á www.inchcape.com.

Um er að ræða framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar Örn Birgisson þjónustustjóri innri þjónustu rob@askja.is