IT Service Delivery Manager

Date: 16 Apr 2026

Location: Reykjavík, IS

Company: inchcape

Þjónustustjóri upplýsingatækni

Inchcape á Íslandi leitar að reyndum og árangursdrifnum þjónustustjóra  upplýsingatæknimála (Service Delivery Manager) til að móta og efla þjónustu upplýsingatækniþjónustu innan fyrirtækisins. Um er að ræða einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif með því að stuðla að auknum árangri, áreiðanleika og stöðugum umbótum í kraftmiklu og síbreytilegu starfsumhverfi.

Inchcape PLC er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði dreifingar og smásölu bifreiða og er skráð í Kauphöllinni í London. Fyrirtækið starfar á 38 mörkuðum, hefur yfir 16.000 starfsmenn um allan heim og er í samstarfi við helstu bílaframleiðendur heims. Inchcape sameinar alþjóðlega sérþekkingu og áherslu á rekstrarárangur og sjálfbæran vöxt.

Á Íslandi starfar Inchcape í gegnum dótturfélögin Öskju, Dekkjahöllina, Landfara og Bílaumboðið Unu. Þessi félög eru lykilaðilar á íslenskum bílamarkaði, með víðtæka markaðsþekkingu og traust viðskiptasambönd, auk þess að njóta góðs af alþjóðlegu umhverfi, stöðlum og stefnu Inchcape.


Helstu verkefni:

  • Bera ábyrgð á heildrænni þjónustu á sviði upplýsingatækni á Íslandi og tryggja samræmi við rekstur, alþjóðlega upplýsingatækniþjónustu og stjórnarhætti Inchcape
  • Fylgjast með og stýra árangri í gegnum þjónustusamninga, lykilmælikvarða og umbótaverkefni
  • Tryggja rekstraröryggi innviða, hugbúnaðar og þjónustu til notenda í samvinnu við alþjóðleg teymi
  • Vera aðal tengiliður Inchcape á Íslandi varðandi þjónustu og tryggja skjót viðbrögð og skýra upplýsingagjöf til hagaðila
  • Stýra samskiptum við birgja og þjónustuaðila, þar á meðal frammistöðueftirliti, samningum og hagræðingu í þjónustu
  • Stýra eftirspurn og samræma afhendingu upplýsingatækniverkefna og umbóta í samræmi við þarfir reksturs
  • Byggja upp sterk tengsl við stjórnendur, lykilnotendur og alþjóðleg upplýsingatækniteymi
  • Stýra og hámarka rekstrar- og fjárfestingarkostnað með áherslu á hagkvæmni og virðissköpun
  • Tryggja að farið sé eftir stefnum, öryggisstöðlum og regluverki (t.d. GDPR, úttektir og eftirlit)
  • Stýra viðbragðsáætlunum vegna rekstrartruflana og hamfara og tryggja viðbúnað, prófanir og stöðugar umbætur

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Að minnsta kosti fimm ára reynsla í sambærilegu starfi
  • Sterk leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Reynsla af samstarfi við birgja og þjónustuaðila
  • Reynsla af upplýsingatækniöryggi og regluverki
  • Reynsla úr bílaiðnaði er kostur en ekki skilyrði
  • Hæfni til að greina og miðla upplýsingum á skýran hátt
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku

Af hverju Inchcape á Íslandi?

  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Samkeppnishæf laun og góð fríðindi
  • Sterk liðsheild og alþjóðlegt starfsumhverfi
  • Áhersla á velferð starfsfólks
  • Líftrygging fyrir alla starfsmenn

www.inchcape.com

Umsóknarfrestur: 3. maí

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á ensku þar sem fram kemur áhugi á starfinu og hæfni til að gegna því.

Nánari upplýsingar veita Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.

Ef umsækjanda er boðið starfið kann fyrirtækið að óska eftir sakavottorði auk annarra gagna sem staðfesta menntun og reynslu, svo sem prófskírteini. Einnig kann að vera óskað eftir upplýsingum um fjárhagsstöðu, þar á meðal staðfestingu á að viðkomandi sé ekki gjaldþrota eða á vanskilaskrá, eftir eðli starfsins.