Tæknimaður í notendaþjónustu

Date: 27 Nov 2026

Location: Reykjavík, IS

Company: inchcape

Tæknimaður í notendaþjónustu 

Langar þig að þróast í starfi, byggja upp þekkingu og reynslu og vera hluti af öflugu og góðu teymi? 

Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af alþjóðlegu fyrirtæki. Við vinnum með nokkur af fremstu vörumerkjum í bílaiðnaðinum og leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina. 

Við leitum að lausnamiðuðum og þjónustulunduðum aðila í starf tæknimanns í notendaþjónustu (IT support technician) hjá Inchcape á Íslandi. Starfið tilheyrir Þjónustu- og upplýsingatæknisviði og felst í að veita starfsfólki fyrirtækisins fyrsta flokks tæknilega þjónustu og stuðning með það að markmiði að tryggja öruggt, skilvirkt og samfellt rekstrarumhverfi upplýsingatæknikerfa. 

Starfið felur í sér daglega notendaþjónustu, úrræðaleit, uppsetningu og viðhald á tækjabúnaði og hugbúnaði ásamt þátttöku í umbótaverkefnum og þróun upplýsingatækniþjónustu fyrirtækisins. Um er að ræða fullt starf og tæknimaður í notendaþjónustu þarf að vera öruggur í samskiptum, skipulagður og lausnamiðaður. 

Helstu verkefni: 

  • Tæknileg þjónusta við notendur vegna upplýsingakerfa, hugbúnaðar og vélbúnaðar 

  • Móttaka, greining og úrlausn beiðna og atvika í gegnum þjónustuborð (Service Desk) 

  • Uppsetning, afhending og umsjón með tölvum, farsímum og öðrum búnaði 

  • Stofnun, breytingar og lokun aðganga samkvæmt verklagi 

  • Aðstoð og fræðsla til notenda um upplýsingatæknikerfi og ferla 

  • Eftirfylgni með því að þjónustubeiðnir séu afgreiddar innan skilgreindra þjónustuviðmiða 

  • Þátttaka í innleiðingu nýrra kerfa, tækni og verkefna 

  • Viðhald skjölunar, verklagsreglna og þekkingargrunns upplýsingatæknideildar 

  • Stuðningur við upplýsingaöryggi með því að fylgja stefnum og verklagi fyrirtækisins 

  • Þátttaka í stöðugum umbótum á þjónustuferlum og notendaupplifun 

Hæfniskröfur: 

  • Menntun á sviði upplýsingatækni eða sambærileg reynsla 

  • Reynsla af notendaþjónustu er skilyrði 

  • Góð þekking á Microsoft 365 umhverfi og Windows stýrikerfum 

  • Microsoft-vottun er kostur 

  • Þekking á aðgangsstýringum og almennri kerfisumsjón er kostur 

  • Rík þjónustulund og hæfni til að eiga fagleg samskipti við notendur á öllum sviðum fyrirtækisins 

  • Góð greiningarhæfni og hæfni til að leysa vandamál með skipulögðum hætti 

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt góðri samvinnuhæfni 

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti 

  • Gild ökuréttindi 

Ekki hika við að sækja um

Hljómar þetta eins og starf fyrir þig? Sendu okkur endilega umsókn, jafnvel þótt þú uppfyllir ekki öll skilyrðin sem við leitum að. Þú gætir verið rétti einstaklingurinn í þetta starf eða annað tækifæri innan Inchcape Ísland.

Tækifæri fyrir öll  

Við viljum skapa fjölbreyttan vinnustað þar sem ólík reynsla, bakgrunnur og sjónarmið fá að njóta sín. Þess vegna hvetjum við öll sem hafa áhuga á starfinu til að sækja um.

Inchcape Ísland býður upp á  

Hjá Inchcape horfum við til framtíðar og viljum hafa okkar fólk með í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á gott samstarf, vellíðan og vinnuumhverfi þar sem ólíkt fólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.

Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, byggja upp þekkingu og þróast í starfi bæði hér heima og sem hluti af alþjóðlegu fyrirtæki.

Um okkur

Á Íslandi starfar Inchcape í gegnum dótturfélögin Öskju, Dekkjahöllina, Landfara og Bílaumboðið Unu. Þessi félög eru lykilaðilar á íslenskum bílamarkaði, með víðtæka markaðsþekkingu og traust viðskiptasambönd, auk þess að njóta góðs af alþjóðlegu umhverfi, stöðlum og stefnu Inchcape.

Um Inchcape  

Inchcape er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í dreifingu og sölu bifreiða og starfar á 39 mörkuðum um allan heim. Við vinnum með mörgum af stærstu vörumerkjum bílaiðnaðarins og leggjum áherslu á að þróa lausnir sem styðja við sjálfbærari samgöngur til framtíðar.

Hjá Inchcape starfa yfir 17.000 manns um allan heim. Við leggjum áherslu á fjölbreytileika, gott samstarf og vinnuumhverfi þar sem fólk fær að njóta sín, með það að markmiði að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila.

Inchcape er öflugt og vaxandi alþjóðlegt fyrirtæki sem tekur virkan þátt í þeirri þróun sem á sér stað í bílaiðnaðinum.

Nánari upplýsingar um Inchcape má finna á www.inchcape.com.

Um er að ræða framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Örn Viðarsson þjónustustjóri upplýsingatækni sov@inchcape.is